11.10.2006
Karabískar eðalrækjur í morgunmat
... ekki slæmt það! Sharon ofurritari hérna er sko ekkert að klikka á því! Í gær í hádegismatnum (er ég gúlpaði í mig 1 kg. af Gallo Pinto (hrísgrjón og baunir), steiktum banana og ómældu magni af tortillum) minntist ég á að um 10-leytið finn ég alltaf fyrir þessu líka svakalega sykurfalli og leita uppi allt sem ætt er á skrifstofunni (sem er nú ekki mikið epli, greip eða kex). Nú var hún að koma, þessi elska, með rækjusalat og kexkökur! :þ Hið ljúfa líf! Ég vil ekki neitt - humar eða frægð, bara fyrsta flokks eðal rækjur í morgunmat.
Annars er rækjan hið merkilegasta fyrirbæri, meðal annars fyrir það að hver rækja er á ævi sinni bæði kvendýr og karldýr, þar sem fyrra kyn hverrar rækju er karlkyn og kvendýrin því oftast talsvert stærri. Svo lengir lærir sem lifir og nánar um rækjuna hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2006
ÁFRAM ÍSLAND
jafnvel þó við getum ekki neitt
... sem er nú auðvitað ekki alveg sannleikanum samkvæmt ...
h
Hjálmar í byrjunarliðið í stað Hannesar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2006
Mombacho eldfjallið & Playa bonita
Nýjar myndir frá ágústmánuði! Ég ligg enn á myndum frá Playa de Coco & Karabískuströndinni ... skelli þeim inn við tækifæri. Hægt er að komast inn á myndaalbúmin með því að smella á "Myndirnar mínar" eða "Albúmin mín". Ég hef ekki hugmynd um það afhverju ég er með þessar tvær leiðir í gangi (",). Myndirnar eru ekki í tímaröð þar sem það virðist ekki vera valmöguleiki að raða þeim þannig upp ... svona er lífið.
Setti líka inn tengil á myndir frá 2004-2006.
Para encontrar fotos de Nicaragua: "Myndirnar mínar" o "Albúmin mín".
Fotos de 2004-2006: "Gamlar myndir / FOTOS 2004-2006"
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.9.2006
tropical fever
Fyrsti danstíminn gat auðvitað ekki verið neitt annað en upplifun! Ég náði að vingast við afar indæla stelpu sem á 5 mín. náði að deila með mér ævisögunni. Það var upplýsandi. Hún var einnig að koma í fyrsta sinn, nema í þolfimi. Áður en leiðir skildu tilkynnti hún mér að danskennarinn fyrir 18:00 tímann væri þessi líka svaka hönk, kaffibrúnn eyjaskeggi með meiru. Hún hafði ekki rangt fyrir sér, amk með útlitið, ég veit ekkert hvaðan hann er. Danstíminn per se virkaði nú frekar eins og einhverskonar leikfimitími með trópikal-undirleik, og MASSA mikið af MJAÐMAhreyfingum. Við vorum ca. 8 í tímanum, ég svona 568 litatónum ljósari en rest. Þetta var bara ansi skemmtilegt, og mér fannst ég komast svona nokkuð skammlaust frá þessu, svona miðað við efni og aðstæður ... sit ekki við símann og bíð eftir að það verði hringt í mig til að taka þátt í næstu sýningu dansflokksins, en sem sagt nokkuð skammlaust (tek fram að það var ekki spegill í herberginu, svo ég hef nákvæmlega ekkert til að byggja þessa staðhæfingu á).
Ég auðvitað lagði mig alla fram við að apa upp eftir kennaranum réttar hreyfingar og ritma = aldrei hef ég stúderað eins mikið og horft jafnt stíft á afturenda nokkurs karlmanns! Gaman að því. Tíminn var sem sagt fínn, í styttri kantinum þó, reyndi á, en ekki of mikið. Kennarinn spurði þó ansi oft hvort við værum þreytt, og horfði skuggalega mikið á mig (,). Ég auðvitað svaraði eins og sönnum dansara sæmir: Þreytt? Eftir hvað? Það var ekki fyrr en ég kom heim að ég skyldi af hverju gæinn var að hafa áhyggjur. Ég var SKÆR-HYPERGLOW-IN-DARKÚLTRARAUÐ í framan! Hann hefur greyið auðvitað bara séð fram á að cheleið hvíta (á líkama mínus andlit) myndi fá hjartaáfall í fyrsta tímanum. Bruninn frá því um helgina blandaður með hinum klassíska áreynslu roða mínum leiddi af sér lit sem ég hef bara hreinlega aldrei séð á mennsku andliti.
En nú er bara að finna kókoshnetur í réttri stærð og blóm í hárið!
.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.9.2006
af mér
Ok, þar sem ég hef lítið (höhöm, ekkert) skrifað síðan ég kom hingað út og mikið verið í gangi skelli ég hér fram nokkuð handahófskennt nokkrum punktum. Sem sagt, frá því ég skrifaði síðast hef ég m.a.:
- Gist á flugvallarhóteli Hilton í NúJork og roðnað við að hlusta á ofurdrukkna dömu spyrja barþjón hótelsins 20 x hvort hann væri hryðjuverkamaður, svo tók hún mynd af kauða og tilkynnti hátt og skýrt að þeir væru allir eins.
- Komist að því að seint sé hægt að lýsa Managua borg sem sértaklega skipulagðri eða fallegri, en þó farið að finnast mjög vænt um þessa kaotísku borg. Þá hef ég með tímanum farið að læra inn á hinar skondnu leiðir til að rata hér í borg. Gotuheiti og númer eru náttúrulega bara glötuð leið til að finna heimilisföng. Mun betra er að segja: Já, humm, þú ferð svona 400 metra í suður frá því sem landbúnaðarráðuneytið var einusinni, heldur áfram þar til þú kemur að km. 8 ½ á Masaya veginum, þá ferðu fimm blokkir í vestur,og þetta er húsið sem er við hliðina á gulu lyfsölunni. Ekki málið!
- Gert mig heimakomna í þessari líka indælu íbúð í Managua borg, átt í hrottalegu kakkalakkastríði og stundað fjöldamorð á þeim sem minna mega sín, maurunum.
- Hugsað mikið til ykkar allra.
- Krúsað um Managua með hinum alræmdu Fred Flintstone leigubílum borgarinnar, og velt fyrir mér hinum ýmsu hlutum með leigubílstjórunum. Ég er komin með númer ca. 12 leigubílsstjóra sem vilja endilega að ég hringi í þá ef mig skyldi vanta far (eða ræææ (= ride), eins og þeir segja hér í Nicaragua). Ég hef enn ekki hringt í 1.
- Ég hef endurnýjað svo um munar kynni mín við rauðar linsubaunir, maískökur, hrísgrjón og steikta græna banana.- Aha, datt niður á RockStar Supernova sem er víst sýnt hér á sjónvarpsstöðinni People&Arts ... og síðan þá gengur mér mun betur að skilja helstu fréttir á mbl.is
- Bakað bananabrauð 2x + fengið uppskrift af kókosbrauði hjá einni á níræðisaldri
- Vinnan er mjög áhugaverð og ég hef td. skroppið í vinnuferð til Karabískustrandarinnar með danska sendiráðinu (afar spennandi og áhugavert), setið matsfundi menntamálaráðherra og þróunarsamvinnunnar, fylgst spennt með hinni afar litríku kosningarbaráttu, unnið að nokkrum áhugaverðum skýrslum, lesið af mikilli ákefð blöðin hér í landi etc. Ég hlusta alltaf á íslensku hádegisfréttirnar. Ég er með alveg hreint prýðilega skrifstofu, sem passar vel við hið alveg hreint prýðilega sendiráð og samstarfsfólk.
- Ég fór á byltingarafmæli Sandinista í afar góðum félagsskap Hólmfríðar Garðarsdóttur og ofurbyltingarhetjunnar Gladysar Báer. Þar sátum við á VIP svæðinu og nutum dansatriða og ræðuhalda (þó ögn meira dansatriðanna). Það var svart/rauð upplifun. Þá dansaði ég með Santo Domingo í fylgd Sharon ritara sendiráðsins á hátíðardegi Managua og kynnti mér allrækilega þjóðdansamenningu landsins (fór 2x í þjóðarleikhúsið á 2 vikum).
- Orðið nær geðveik við að komast ekki inn á Flickr myndasíðureikninginn minn, og hlaða því í staðin eitthvað af myndum hingað inn á síðuna (freeeekar seinlegt)
- Hugsað töluvert um að setja nýjar myndir á netið, en ekki komið mér í það, ástæða: sjá fyrri punkt.
- Ég skutlaðist upp á Mombacho eldfjallið, 4 klst. ganga um skógivaxna keiluna. Einstaklega fallegt. Það tók mig viku að losna við harðsperrurnar. Þá fór ég á Kókosströndina núna um helgina, ekki kjaftur á ströndinni. Bara ég og sólarlagið, já og ferðafélagarnir Charito nágranni og vinnufélagi hennar, nokkrir pelíkanar og krabbar. Stöndin er í um 3 klst. fjarlægð frá Managua, rétt við landamæri Costa Rica. Kyrrahafið tók á móti okkur með þvílíkt flottum öldugangi og alveg réttu hitastigi. Komum við í Sant Juan del Sur á heimleiðinni, rækur og steiktur grænn banani með osti og sólin sleikt aðeins frekar. Það þarf engann að undra að í ég eyddi gærnóttinni á eftirfarandi máta: 1/3 svefn, 2/3 vaka og áburður Aloe Vera gels. (,)
- Í dag fer ég í fyrsta danstímann (,), held að það séu ágætis lokaorð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2006
Myndir!
Halló halló! Það eru komnar inn myndir frá þessum fyrsta mánuði hér í Managua ... og fyrst það eru komnar myndir þá er aldrei að vita nema það fari að koma að færslu (",)
h.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.7.2006
... and off I go
fyrsta stopp New York, svo Miami og síðast en ekki síst Managua!
Ég náði náttúrulega ekki að heyra í eða sjá 1/2 af öllu því góða fólki sem ég ætlaði mér ... en kem heim í gott jólafrí ;).
kossar og knús
ferðalangurinn
h.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.7.2006
home sweet home
er mætt í svalann, sem er bara yndislegt :), að auki stoppa ég svo stutt að ég næ bara líkast til ekki að fá leið á honum . Er búin að fara norður, eðaldagar, fara á fundi fyrir vinnuna hér í Reykjavík, stefnan verður tekin til Víkur á þriðjudaginn og svo flýg ég út á laugardagseftirmiðdag. Svo það er pökkuð dagskrá framundan, en bara gaman að því. En næsta mál á dagskrá verður að skella sér í sveitasæluna og grillveislu í Helludal a la Ranaliðið mmmmm. En ef ég ætla að ná því þýðir lítið að sitja upp í sófa og hugsa um hlutina sem þarf að gera ... ætla að drífa í einhverju ...
já, og set hér inn eina góða mynd úr franska gyðingabrúðkaupinu í Grenoble ... alveg hreint lýsandi ... en meira um að síðar ...
kossar
h.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.6.2006
rignir?
já, jafnt í BCN sem og í henni Reykjavík ... og adeins 13 sitga hitamunur
Mér finnst rigningin gód
h.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Barçarassasídur
- Barcelona Clan Myndir, fréttir, tenglar
- Barcelonafans myndir frá BCN
- FC Barcelona historia/saga á spaensku / en español
- Johan Cruyff
- Mark VanBommel
- Xavi
- Henrik Larsson
- Frank Rijkaard El mister
- FC Barcelona més que un club
Gódar sídur
- Flickr myndir
- Gamlar myndir / FOTOS 2004-2006
- Iceland Guides
- EU Gateway to EU
- SÞ We the Peoples of the United Nations ... United for a Better World
- BL baggalútur
- IBEI Hér nádi ég mér í mastersgráduna
- GUNI Vinnustadurinn :)
- Visir blod, útvarp, fréttir
- Bankinn money makes the world go around
- Ordabók Ansi hentug
- Leitandi? Gúggladu málid!
- Krugman
- Barcelona Amigos para siempre, I will always be your friend
- Gamlar skuldir? Vid reddum thví!
- Iceland Express Fljúgdu fljúgdu fljúgdu haerra
- Nafli alheimsins Sá eini sanni
- Bestir í boltanum Áfram Drangur!
- Evrópusambandid Gateway to EU
- Heimsins bestu sokkar Víkurprjónid
Gott fólk
- Sigrún Dóra Kraftakona
- Mamma Algjörlega traustins verð!
- Stefnumót Víkurskóla 78-80 Vaskir Víkarar
- Sólborg Sólborgin
- Dóra Genuine Garfield
- Jóhanna Ósk Songfugl og ofurgaed
- Anna Brynja Anna Brynja, nú í Reykjavík
- Hédinn ... Halldórsson sem talar frá Kaupmannahöfn
- Magga Ævintýri Moxunnar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
ICELAND GUIDE
RSS-straumar
Af mbl.is
Erlent
- Heita því að tryggja þjóðaröryggi sitt
- Sakar biskupinn um viðurstyggilegan tón
- Fjórir særðir eftir stunguárás í Tel Aviv
- Náðun stuðningsmanna Trump vekur ólík viðbrögð
- Skotinn til bana við skyldustörf
- Sársauki okkar er nístandi
- Ákvörðun Trumps veldur titringi
- Viljum hvorki vera Danir né Bandaríkjamenn
- Tollahótanir Trumps vekja urg
- Mikill vindur gæti leitt til fleiri elda